
Framtíðarsýn
Við viljum tryggja trausta framtíð fyrirtækisins með stöðugum vexti og nýjungum á sviði þjónustu og vöruframboðs fyrir viðskiptavini okkar.
Við endurskoðum reglulega framleiðslutækni og umhverfisferla okkar. Við viljum nýta auðlindir á ábyrgan hátt og laða til okkar gott starfsfólk til að geta svarað kröfum og eftirspurn í framtíðinni.
Elkem leitast alltaf við að mæta kröfum viðskiptavina sinna, valda sem minnstri röskun á náttúrunni og skapa öruggt og gott vinnuumhverfi fyrir starfsmenn sína.
Gildi
Gagnsæi
Vinnuumhverfi Elkem byggist á trausti, virðingu og persónulegu frumkvæði. Við viljum að starfsmenn okkar geti nálgast hvern sem er, hvenær sem er og lagt fyrir viðkomandi spurningu eða komið með uppástungur um ýmis málefni sem tengjast starfi þeirra.
Hagkvæmni
Eitt af markmiðum Elkem er að mannauður fyrirtækisins, tækni og tækninýjungar auki verðmæti þess. Hagkvæmni og nýtni eru grundvallarforsendur í daglegum rekstri Elkem. Starfsfólk fyrirtækisins á að stjórna og nýta fjármagn Elkem eins og það væri þess eigið. Á sama tíma er nauðsynlegt að starfsfólk njóti þess að vera í vinnunni og að því sé umbunað fyrir góða frammistöðu.
Nákvæmni
Elkem setur öll verkefni í ákveðið vinnuferli þar sem sem leitast er við að hámarka þekkingu og úrvinnslu gagna. Nákvæm vinnubrögð starfsfólks Elkem minnka hættu á mistökum og gerir fyrirtækinu kleift að bjóða viðskiptavinum sínum traustari og betri alhliða þjónustu.
Allt starfsfólk Elkem á að vera meðvitað og vinna eftir markmiðum og gildum fyrirtækisins í störfum sínum.
Síbreytni
Elkem leitast eftir að koma á langtímasambandi við viðskiptavini sína þar sem Elkem leggur sig fram um að mæta kröfum viðskiptavina, starfsmanna og samfélagsins með síbreytilegum og traustum lausnum.
Við viljum leiða saman fólk með ólíkan bakgrunn til starfa með það að leiðarljósi að skapa frjótt og kraftmikið starfsumhverfi.