Elkem AS


Elkem á Íslandi er hluti af sterkri alþjóðlegri heild, Elkem AS, sem er einn af helstu framleiðendum málmblendis í heiminum. Aðalframleiðsluvörur fyrirtækisins eru kísilmálmur, kísiljárn og rafskaut og skyld efni úr kolefni.

Stefna Elkem AS er að valda sem minnstri röskun á náttúrunni og leggur fyrirtækið mikla áherslu á umhverfismál og að takmarka umhverfisáhrif allrar framleiðslu, ásamt því að skapa öruggt og gott vinnuumhverfi fyrir starfsmenn sína.

Elkem AS rekur verksmiðjur í Evrópu, Norður- og Suður Ameríku, Afríku og Asíu. Um 2.500 manns starfa hjá fyrirtækinu og var velta þess um 7,4 milljarðar norskra króna árið 2009.  Forstjóri félagsins er Helgi Aasen.

Viðskiptaeiningum Elkem AS er skipt upp í fimm svið:
Elkem Solar
Elkem Silicon Materials
Foundry Products
Elkem Carbon
Elkem Energy

Elkem AS er í eigu Orkla ASA, sem er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í yfir 40 löndum. Félagið er skráð í norsku kauphöllinni. Hjá félaginu starfa yfir 30.000 manns og velta þess er um 56 milljarðar norskra króna á ári.

Þann 11. janúar 2011 var tilkynnt að Orkla ASA hafði undirritað bindandi samning við China National Bluestar um kaup og sölu á Elkem. Elkem Energy er ekki með í sölunni en hin fjögur svið Elkem.

Frekari upplýsingar um Elkem AS má finna á www.elkem.com

Frekari upplýsingar um Orkla ASA má finna á www.orkla.com

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND 30 ÁRA

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.