
Þjálfun og fræðsla
Við hjá Elkem teljum að starfsþróun byggi á sameiginlegri ábyrgð starfsmanns og fyrirtækis. Markviss þjálfun og fræðsla starfsmanna er afar mikilvæg og nauðsynleg til þess að hámarka árangur fyrirtækisins og ánægju starfsmanna.
Elkem leggur áherslu á góða þjálfun nýliða og símenntun starfsmanna sinna. Með stöðugri tækniþróun og breytingum á starfsaðferðum er nauðsynlegt að starfsmenn viðhaldi hæfni sinni ásamt því að öðlast frekari þekkingu til að sinna fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins.