Elkem Ísland ehf., áður Íslenska járnblendifélagið, er hluti af Elkem AS. Fyrirtækið selur kísiljárn til stálvera, stáliðnaðar og í járnsteypur. Elkem á Íslandi hefur á undanförnum árum aukið vöruframboð sitt á járnblendi og býður nú sérhæfðari vöru til viðskiptavina.

Okkur hjá Elkem er annt um umhverfið og að takmarka neikvæð áhrif allrar framleiðslu. Því leitumst við eftir því að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á umhverfið.

Við leggjum mikla áherslu á að Elkem sé þekkt fyrir gott starfsfólk sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á starfsemi fyrirtækisins og þykir eftirsóknarvert að starfa hjá því.

10. febrúar 2012

Sumarstörf 2012

Elkem á Íslandi leitar að öflugu starfsfólki til sumarafleysinga í framleiðslunni. Áhugasömum er bent á að sækja um hér á vefnum undir Störf og velja sumarstörf fyrir umsókn.

5. desember 2011

Elkem dregur úr framleiðslu í Noregi

Vegna veikari markaða fyrir kísiljárn og kísilmálm, hefur Elkem samstæðan ákveðið að stöðva tímabundið framleiðslu í þremur ofnum til viðbótar frá miðjum desember. Áður hafði Elkem stöðvað einn ofn í Salten verksmiðjunni í norður Noregi. Þetta hefur engin áhrif á kísiljárnframleiðslu hjá Elkem Ísland, allir þrír ofnar fyrirtækisins verða áfram í fullum rekstri. 

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því meira en 32 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

Kísiljárn heitir ferrosilicon á ensku, skammstafað FeSi. Það er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro) og kísil (e. silicon).