Elkem Ísland ehf., áður Íslenska járnblendifélagið, er hluti af Elkem AS. Fyrirtækið selur kísiljárn til stálvera, stáliðnaðar og í járnsteypur. Elkem á Íslandi hefur á undanförnum árum aukið vöruframboð sitt á járnblendi og býður nú sérhæfðari vöru til viðskiptavina.

Okkur hjá Elkem er annt um umhverfið og að takmarka neikvæð áhrif allrar framleiðslu. Því leitumst við eftir því að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á umhverfið.

Við leggjum mikla áherslu á að Elkem sé þekkt fyrir gott starfsfólk sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á starfsemi fyrirtækisins og þykir eftirsóknarvert að starfa hjá því.

19. maí 2011

Gufusprengingar

Gufusprengingar urðu um kvöldmatarleytið við ofn 1 þegar fljótandi málmur komst í snertingu við vatn. Engin slys urðu á fólki. Unnið var í samræmi við neyðaráætlun, slökkt var á öllum ofnum, ofnhúsið rýmt og slökkvilið kallað á staðinn. Starfsmenn brugðust hárrétt við aðstæðum og neyðaráætlun virkaði vel. Hættuástandi hefur verið aflýst. Full stjórn er á aðstæðum og ekki er hætta á frekari sprengingum. Skemmdir virðast vera takmarkaðar. Ofn 1 verður ekki ræstur fyrr en búið er rannsaka hvað gerðist og enginn fer inn á svæðið við hann fyrr en í fyrsta lagi á morgun. Ofnar 2 og 3 verða ræstir aftur í kvöld. Öryggið er haft að leiðarljósi við allar aðgerðir.

27. apríl 2011

Nýr kjarasamningur hjá Elkem

Nýr kjarasamningur Elkem Ísland og starfsmanna var undirritaður þann 19. apríl sl. í húskynnum ríkissáttasemjara. Samtök atvinnulífsins (SA) gera samninginn fyrir hönd Elkem við fimm stéttarfélög og sambönd. Atkvæði starfsmanna um samninginn voru talin í gær og var hann samþykktur með 89% greiddra atkvæða. Samningurinn er til þriggja ára, gildir frá 1. janúar 2011 til 31. janúar 2014.

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND 30 ÁRA

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.