7. apríl 2011 10:12
Skýrsla fyrir umhverfisvöktun árið 2010
Skýrsla um niðurstöður umhverfisvöktunar í nágrenni Grundartanga fyrir árið 2010 er komin út. Í skýrslunni eru birtar niðurstöður sameiginlegrar umhverfisvöktunar iðjuveranna á Grundartanga fyrir árið 2010. Umhverfisvöktunin fór fram samkvæmt umhverfisvöktunaráætlun sem samþykkt er af Umhverfisstofnun
Verkfræðistofan Efla vann skýrsluna og hana er að finna hér.
Tilgangur umhverfisvöktunarinnar er að meta það álag á umhverfið sem starfsemi iðjuveranna veldur. Árið 2010 var efnainnihald í andrúmslofti, gróðri, sauðfé og árvatni vaktað í samræmi við áætlun. Auk þess eru í skýrslunni birtar niðurstöður vöktunar móareita sem fram fór árið 2009.