6. apríl 2011 10:37
Kynningarfundur um umhverfismál 7. apríl
Opinn kynningarfundur um umhverfismál verður að Hótel Glymi að Hvalfjarðarströnd, fimmtudaginn 7. apríl n.k. og hefst hann kl. 13.
Á fundinum verða kynntar niðurstöður mengunarvarna og umhverfisvöktunar á Grundartanga fyrir árið 2010.
Þetta er sameiginlegur fundur iðjuveranna á Grundartanga, það er Elkem Ísland og Norðurál.
Á fundinum munu liggja frammi eintök af ársskýrslu um umhverfisvöktun á Hvalfjarðarsvæðinu fyrir iðjuverin á Grundartanga. Verkfræðistofan Elfa vann ársskýrsluna.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta á fundinn.