20. ágúst 2010 11:12

Rannsókn á tildrögum vinnuslyss lokið

Rannsókn sérstakrar rannsóknarnefndar móðurfélags Elkem Ísland á tildrögum vinnuslyss sem varð hjá járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga þann 29. júní sl. er lokið. Fyrr í þessari viku hófst vinna við að endurræsa ofninn sem eldurinn slapp úr. Yfirumsjón og meginþungi rannsóknarinnar hefur hvílt á sérfræðingum frá móðurfélaginu Elkem AS í samstarfi við starfsmenn verksmiðjunnar á Íslandi. Vinnueftirlitið hefur frá upphafi fylgst með framgangi rannsóknarinnar og var ákvörðun um að gangsetja ofninn á nýjan leik tekin í samráði við stofnunina. Niðurstöður í sjálfstæðri rannsókn Vinnueftirlitsins á tilurð slyssins liggja einnig fyrir.

Slysið varð við framleiðslu á svokölluðu 55% kísiljárni en hefðbundin framleiðsla Elkem Ísland er járnblendi með 65% eða 75% magni kísils. Elkem AS hefur framleitt 55% kísiljárn um áratugaskeið án teljandi óhappa og í samvinnu við félagið var þróuð sambærileg framleiðslulína á Íslandi. Við rannsókn slyssins hefur komið í ljós að við framleiðslu þessarar tegundar kísiljárns leynast meiri hættur en þegar kísilmagn járnblendisins er meira.

Nokkrir samverkandi þættir eru taldir hafa valdið slysinu. Hráefni sem fyllt var inn á ofninn með venjubundnum hætti hafði ekki sigið niður í ofninn heldur myndað brú yfir holrými sem fyrir vikið óx óeðlilega. Þegar brúin hrundi fylgdi henni mikið magn af nýju köldu hráefni sem komst þannig snögglega í samband við mikinn hita á botni ofnsins. Við það losnaði umtalsvert gasmagn á örskömmum tíma og heitar brennanlegar lofttegundir mynduðu eldhaf sem leitaði út um opna lúgu þar sem unnið var við áfyllingu hráefnis.

Stjórnendur Elkem Ísland hafa í kjölfar slyssins og rannsóknarinnar tekið ákvörðun um margþættar aðgerðir til þess að auka enn frekar öryggi starfsemi sinnar. Í fyrsta lagi mun verksmiðjan einungis sinna framleiðslu járnblendis með a.m.k. 65% kísilinnihaldi. Hráefnisskammtar verða minnkaðir verulega í öllum ofnum verksmiðjunnar og hráefnismötun verður tölvustýrð. Með aukinni sjálfvirkni verður vinna á svokallaðri skörungshæð þar sem slysið átti sér stað minnkuð verulega og það tryggt að starfsmenn á hæðinni þurfi ekki að fara út úr vinnuvélum sínum. Til viðbótar verður vinnubrögðum á skörungshæð breytt með ýmsum öðrum hætti, eftirlit með rakainnihaldi og ástandi hráefnis verður aukið, ýmsar vinnureglur hertar og þjálfun starfsfólks vegna nýs vinnulags aukin enn frekar.  

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því meira en 32 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

Kísiljárn heitir ferrosilicon á ensku, skammstafað FeSi. Það er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro) og kísil (e. silicon).