20. apríl 2010 09:30

Umhverfisvöktun - kynning 20. apríl 2010

Elkem Ísland á Grundartanga ásamt Norðuráli verður með kynningu fyrir almenning um umhverfismál stóriðjuveranna og framleiðslu fyrirtækjanna þriðjudaginn 20. apríl að Hótel Glymi að Hvalfjarðarströnd frá klukkan 13:00 til 20:30.

Á kynningunni verður hægt að fræðast um niðurstöður mengunarvarna, og umhverfisvöktunar stóriðjuveranna. 

Klukkan 13:30 mun Jóhanna B. Weisshappel frá verkfræðistofunni Mannviti kynna niðurstöður umhverfisvöktunar í Hvalfirði. Hún mun fara yfir niðurstöður mælinga í andrúmslofti, ferskvatni, gróðri og sauðfé. Niðurstöður verða einnig kynntar á veggspjöldum.

Starfsmenn beggja fyrirtækja verða viðstaddir kynningar ásamt Jóhönnu B. Weisshappel til að svara spurningum sem upp munu koma.
 

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því meira en 32 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

Kísiljárn heitir ferrosilicon á ensku, skammstafað FeSi. Það er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro) og kísil (e. silicon).