19. maí 2011 22:18

Gufusprengingar

Gufusprengingar urðu um kvöldmatarleytið við ofn 1 þegar fljótandi málmur komst í snertingu við vatn. Engin slys urðu á fólki. Unnið var í samræmi við neyðaráætlun, slökkt var á öllum ofnum, ofnhúsið rýmt og slökkvilið kallað á staðinn. Starfsmenn brugðust hárrétt við aðstæðum og neyðaráætlun virkaði vel. Hættuástandi hefur verið aflýst. Full stjórn er á aðstæðum og ekki er hætta á frekari sprengingum. Skemmdir virðast vera takmarkaðar. Ofn 1 verður ekki ræstur fyrr en búið er rannsaka hvað gerðist og enginn fer inn á svæðið við hann fyrr en í fyrsta lagi á morgun. Ofnar 2 og 3 verða ræstir aftur í kvöld. Öryggið er haft að leiðarljósi við allar aðgerðir.

meira...
27. apríl 2011 11:55

Nýr kjarasamningur hjá Elkem

Nýr kjarasamningur Elkem Ísland og starfsmanna var undirritaður þann 19. apríl sl. í húskynnum ríkissáttasemjara. Samtök atvinnulífsins (SA) gera samninginn fyrir hönd Elkem við fimm stéttarfélög og sambönd. Atkvæði starfsmanna um samninginn voru talin í gær og var hann samþykktur með 89% greiddra atkvæða. Samningurinn er til þriggja ára, gildir frá 1. janúar 2011 til 31. janúar 2014.

meira...
14. apríl 2011 11:16

Sala Elkem til Bluestar

Gengið var endanlega frá sölu á Elkem AS til National Bluestar Group Co., Ltd (Bluestar) fyrr í dag. Það var gert í samræmi við bindandi samning sem Orkla ASA gerði þann 10. janúar við Bluestar.
meira...
7. apríl 2011 10:12

Skýrsla fyrir umhverfisvöktun árið 2010

Skýrsla um niðurstöður umhverfisvöktunar í nágrenni Grundartanga fyrir árið 2010 er komin út. Í skýrslunni eru birtar niðurstöður sameiginlegrar umhverfisvöktunar iðjuveranna á Grundartanga fyrir árið 2010. Umhverfisvöktunin fór fram samkvæmt umhverfisvöktunaráætlun sem samþykkt er af Umhverfisstofnun

Verkfræðistofan Efla vann skýrsluna og hana er að finna hér.

meira...
6. apríl 2011 10:37

Kynningarfundur um umhverfismál 7. apríl

Opinn kynningarfundur um umhverfismál verður að Hótel Glymi að Hvalfjarðarströnd, fimmtudaginn 7. apríl n.k. og hefst hann kl. 13.

Á fundinum verða kynntar niðurstöður mengunarvarna og umhverfisvöktunar á Grundartanga fyrir árið 2010.

meira...
11. janúar 2011 06:36

Orkla selur Elkem AS

Þann 11. janúar 2011 tilkynnti Orka ASA að búið væri að undirrita bindandi samning um kaup og sölu Elkem AS. Innifalið í sölunni eru fjögur svið Elkem, en orkusviðið er undanskilið. Elkem Ísland tilheyrir Elkem Foundry Products og er því hluti af sölunni.

Fyrirvarar eru um samþykki viðeigandi stjórnvalda, bæði í Kína og Noregi. Gert er ráð fyrir að sölunni ljúki á fyrri hluta ársins 2011.

Hér er að finna kynningu á sölu Elkem AS.

meira...
1. júlí 2010 05:33
31. ágúst 2009 04:06
18. mars 2009 07:13
UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND 30 ÁRA

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.