Framleiðsla


Elkem selur kísiljárn til stálvera, stáliðnaðar og í járnsteypur. Kísiljárn er mikilvægt íblendiefni við framleiðslu stálafurða. Kísiljárn er notað til að fjarlægja súrefni úr stálbráð og sem málmblendi til þess að hafa áhrif á eiginleika og gæði stálsins. Elkem á Íslandi framleiðir hefðbundið kísliljárn (standard á ensku) og sérhæfðar afurðir úr kísiljárni.

Elkem á Íslandi hefur á undanförnum árum aukið vöruframboð sitt á kísiljárni og býður nú sérhæfðari vöru og þjónustu til viðskiptavina. Með auknu vöruframboði komum við til móts við síbreytilegar þarfir viðskiptavina okkar og þjónum stærri markaði.

Elkem á Íslandi hefur frá upphafi framleitt hefðbundið kísiljárn (FeSi). Á undanförnum árum hefur Elkem einnig framleitt kísiljárn sem inniheldur minna af áli og kolefni en hefðbundið FeSi. Elkem hefur sett stefnuna á stærri markaðshlutdeild í sérhæfðu kísiljárni á næstu árum.

Elkem á Íslandi mun þannig nýta um 1/3 af FeSi framleiðslu fyrirtækisins til þess að framleiða magnesíum kísiljárn (MgFeSi) vörur. MgFeSi er notað af sem íblendiefni í járnsteypur. Elkem á Íslandi er að vinna að því að fá vottun samkvæmt ISO TS-16949:2002 gæðastaðlinum vegna framleiðslu á MgFeSi vörum.

Framleiðslugeta málmbræðsluofnanna er 120.000 tonn.

 

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND 30 ÁRA

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.